19. september 2009 klukkan 08:46
Ég á ekki von á að nokkur nenni að kíkja ínn á þessa bloggsíðu lengur en hvað með það, ég hripa eitthvað niður og svo sjáum við til hvort einhver nenni að lesa vitleysuna í mér...
Facebook-ið er eiginlega búinn að taka við af bloggmiðlinum að mínu mati. En það er fínt að nota bloggið til að koma skoðunum sínum á framfæri til dæmis af okkar misjöfnu þingmönnum og öðrum ráðamönnum.
Ég var að lesa yfir fréttamiðlana núna í morgunsárið og sá að Gísli Marteinn er að staðhæfa að flugvöllurinn í Reykjavík eigi ekki heima í vatnsmýrinni. Hvernig dettur honum í hug að koma með slíkar staðhæfingar þegar efnahagsástandið er eins og það er? Eins og það sé ekki nóg af tómu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu í dag bæði íbúðar- og iðnaðarhúsnæði. Það er ekki eins og íslendingum sé að fjölga í augnablikinu. Fólk flýr ísland eins og heitan eldinn eða næstum því. Skil ekki af hverju þessir aumingjar sem reyna reka þetta land gátu ekki bara sagt Hollendingum og Bretum ad éta það sem úti frýs......... Ekki hef ég áhuga á að flytja aftur til Íslands meðan verið er að borga upp skítinn eftir ICESAFE. Undanfarið hefur verið óstjórn á Íslandi en ekki ríkisstjórn. Það er ekkert mál að benda á sökudólga þegar kemur að þessu bulli en það virðist enginn hafa dug í sér til að gera nokkurn skapaðan hlut. Best að láta Íslendinga bara gjalda fyrir sukkið hjá nokkrum einstaklingum sem síðan fara fram á að láta sínar skuldir falla niður. ER ÞETTA EKKI GRÍN. Ætlum við að láta þessa hálvita vaða yfir okkur á skítugum skónum. Þeir sitja síðan í höllunum sínum á eyjunum sínum og hlægja af okkur.
Spurning um hvaða kynslóð hefur bein í nefinu til að standa í hárinu á þessum hálvitum...
Sveinn Rúnar Júlíusson
28. janúar 2009 klukkan 14:43
Jæja núna eru sennilega allir búnir að gefast upp á að kíkja á þessa bloggsíðu... En af okkur er það að frétta að við skelltum okkur óvænt til íslands um jólin. Og var frábært að getað eytt jólum og áramótum í faðmi fjölskyldunnar. Við héldum að mestu leiti til hjá tengdó í Þorláksgeislanum . En við vorum nokkrar daga á Flúðum sem og á Selfossi. Þann 5. janúar fór ég svo heim til Álaborgar en Gulla og stelpurnar komu 7. janúar. Þar sem heilsufarið var ekkert sérstakt á liðinu þá brunaði ég til Köben til að sækja þær á völlinn. Við tók prófalestur hjá mér en ég þurfti að undirbúa mig fyrir mitt fyrsta munnlega próf. Eina prófið hjá mér var semsagt að verja verkefnið sem ég og grúbban mín höfðum unnið að síðan í byrjun október. Vörnin fellst í því að við kynnum verkefnið okkar fyrir tveimur „vejlederum" og þeir síðan gagnrína bæði hvernig við leggjum verkefnið fram og skýrsluna í heild sinni. Síðan tók sjálft prófið við, hver og einn fer inn í ca. hálftíma og er spurður spjörunum úr. Við höfðum ákveðið innan grúbbunnar að draga um í hvaða röð við færum inn og að sjálfsögðu fór ég fyrstur, eitthvað sem allir í grúbbunni vonuðust eftir að lenda ekki í. En þó svo að ég hafi verið ósáttur við hvernig mér gékk þá náði ég prófinu og það er það sem gildir. Síðan þá er ég búinn að vera í fríi og er bara legið í leti eins og hægt er.
Elva Rós var mjög sátt við að komast í skólann sinn eftir jólafríið og fengum við að heyra frá kennurum og starfsmönnum að hennar hefði verið sárt saknað þann tíma sem hún var á íslandi. Hún er farin að lesa eins og herforingi og síðan er hún að fara að taka þátt í að setja upp leiksýningu. Og er hún að fara að leika í Öskubusku en allir krakkarnir í börnehaveklassen eru að fara að setja upp samtals 3 leiksýningar þannig að það er spennandi tími framundan hjá Elvu Rós og vinum hennar í skólanum. Í byrjun febrúar verður svo sýnt fyrir foreldra og systkyni.
Elísabet Elín fór á sama tíma í leikskólann sinn og er mjög sátt við að getað farið og leikið sér við alla krakkana þar sérstaklega þó tvíburana, Halldóru og Sigrúnu.
Annars er allt gott að frétta fríið er senn á enda hjá mér þar sem skólinn byrjar aftur á mánudaginn. Allt er á fullu í undirbúningi fyrir Þorrablót sem verður 14. febrúar og er Gulla á fulli í undirbúningi með stjórn og þorrablótsnefnd DIFN.
Sveinn Rúnar Júlíusson
05. desember 2008 klukkan 07:55
Já tíminn líður hratt og jólin á næsta leyti!
Við erum aðeins búin að jólaskreyta hér í kotinu okkar og tvær smákökutegundir í höfn. Er einnig búin að skella í nokkra botna enda er planið að halda smá afmælisveislu fyrir Elísabetu áður en við förum á Klakann. Ómögulegt annað en að samgleðjast með þeim sem hún umgengst hvað mest í lífi sínu undanfarið
Nú er daman litla líka byrjuð á leikskóla!! Byrjaði síðasta mánudag og finnst þetta alveg toppurinn á tilverunni! Aðfaranótt mánudags svaf hún meira að segja með Bangsimon nestisboxið sitt þessi dúlla.
Við kvöddum því elsku Evu dagmömmu á föstudaginn og það var ansi erfitt. Elísabet gaf henni falleg hlekkjaarmband og smá íslenskan lakkrís í kveðjugjöf og Eva gaf stubbunni sína fyrstu Bratz dúkku! Við stefnum að því að heimsækja Evu reglulega enda ekki langt að fara. Í leiskólanum er ekki gert ráð fyrir að börnin leggi sig á daginn og er það allstór breyting fyrir lilluna okkar sem var vön 1-2 tíma svefn hjá Evu. Hún er því aaaaansi þreytt seinnipartinn og sofnar oftar en ekki í bílnum þetta skinn.
Í gær fórum við í Fællesspisning hjá skólanum hennar Elvu Rósar. Foreldrafélaginu réttara sagt. Allir mættu með rétti á hlaðborð og þvi hægt að smakka á öllu. Skemmtilegt hygge í skammdeginu. Pabbinn fór reyndar ekki með þar sem hann var á Julefrokost með Orkulínunni í skólanum sínum. Annars gengur skólinn vel hjá heimasætunni. Nú er Olga nágranni komin inn í bekkinn hennar Elvu sem stuðningur við Íslensku börnin sem er frábært. Dísa skvísa er farin að vinna í Dúsnum og Elva framleiðir handa henni teikningar
Skvísunni tókst þó að gera prakkarastrik um daginn þegar hún og tveir vinir hennar földu sig í klukkutíma í skólanum!!!! Þau áttu að fara úr Íslenskutíma yfir í Dúsinn en ákváðu að vera ekkert að drífa sig. Það er að sjálfsögðu búið að ræða þessi mál og vonandi að það hafi skilað sér.
Við höfum ekki alveg sloppið við pestirnar hér en Elísabet fékk æluna. Byrjaði að kasta upp í sinni fyrstu bíóferð og tók 3 daga í þetta. Ég náði mér í þessa fínu eyrnabólgu sem hefur staðið yfir í um 2 vikur. Skemmtilegt það. Þurfti einnig að láta draga úr mér endajaxl svo það er alltaf stuð!
Við í Íslendingakórnum hér í Álaborg héldum jólatónleika og Bingo þann fyrst í aðventu. Kórinn söng nokkur jólalög áður en hafist var handa við Bingospil. Stelpunum fannst þetta rosalega gaman allt saman og Elva var með eigin Bingospjöld og þurfti litla hjálp þar við. Systurnar vildu að sjálfsögðu læra jólalögin sem ég söng með kórnum svo nú eru alltaf mini tónleikar hjá okkur mæðgum
Eins og fyrr segir eru bara 8 dagar þar til við mæðgurnar förum af stað í stóra ferðalagið okkar. Svenni mun skutla okkur til Árósa þar sem við tökum rútu til höfuðborgarinnar. Flogið verður um tvö og ættum við því að verða komnar á Íslandið góða upp úr kaffileyti. Flestar jólagjafir eru í höfn og tilhlökkun mikil. Þó er leiðinlegt að vera frá góðum vinum í heilar þrjár vikur en ég mæti bara með lakkrís og baunir og býð í stórt morgunkaffi hér á nýju ári.
Skemmtilegt helgi framundan, flutningahjálp, smá tjútt í kvöld, afmælið og jólahygge væntanlega.
Aldrei að vita nema ég nenni að henda inn einu bloggi fyrir Íslandsferð.....
Verið góð hvort við annað!!!
Guđlaug Jóna Sigurjónsdóttir
12. nóvember 2008 klukkan 22:36
Eða því sem næst.
Við fórum á foreldrafund hjá Elvunni síðasta mánudag og fengum þessa líka fínu umsögn um hana. Er svo brosmild, dugleg, jákvæð og róleg. Bara alveg eins og mamma sín!!!
En án gríns þá er alltaf gaman að fá svona jákvæð komment og maður fyllist ótrúlegu stolti yfir stóru stelpunni sinni. Hún er líka svo sátt við skólann sinn og dússinn og höfum við ekki orðið vör við neinn leiða eða þessháttar hjá henni.
Einnig hefur skvísan nú hafið skautaiðkun og er, eftir tvær æfingar, staðráðin í að halda áfram. Anja vinkona hennar og bekkjasystir æfir með henni og þær geta verið ansi hreint skrautlegar saman
Elísabet er þessa vikuna og næstu í svokölluðu gestahúsi. Eva dagmamman hennar er á námskeiðum og þá fer hún, auk hinna barnanna í vistun annarsstaðar. Í dag fékk hún að fara heim með Patrik vini sínum sem býr í sömu götu og við. Mamma hans bjó á Íslandi í mörg ár og talar reiprennandi íslensku. Hún meira að segja bjó um tíma við hliðina á móðursystur minni svo ég kannast nú aðeins við hana.
Merkilegt hvað þessi heimur er agnarsmár.
Nú styttist líka heldur betur í 1.des en þá byrjar Betan í leikskóla. Við erum varla að tíma að taka hana frá Evu sinni enda er hún algjör gullmoli. En daman er þó orðin ansi spennt og næsta föstudag ætlum við að kíkja með hana að heimsækja leikskólann.
Haldiði að ég hafi ekki bara skellt mér á brjálað skvísudjamm síðasta laugardag.... Byrjuðum þó voðalega rólegar og penar með léttvín og osta. En um miðja nótt var settur upp heljarinnar Karoke búnaður og sungum við hástöfum! Sóló, dúett, tríó og name it! Og það með einn míkrófón ;) Við skemmtum okkur frábærlega og það verður erfitt að toppa stuðið sem ríkti.
Það er þó ekki langt í næsta tjútt, en við hjónaleysin erum að fara í fertugsafmæli um næstu helgi. Stella, mamma hennar Önju, bauðst til að taka BÁÐAR stelpurnar yfir laugardagsnóttina. Ég er ekki alveg viss um að hún átti sig á hvað hún er að koma sér í
En þetta verður án efa svaka stuð, enda hálfri Álaborg boðið.
Nú mun ég taka frá smá kafla í bloggi þessu til þess að minnast á hana Hrefnu elskulega vinkonu mína og nágrannakonu. Vil ég því biðja alla um að hugsa til hennar í heila mínútu áður en lestri er haldið áfram......................................
Kveð að sinni og læt heyra í mér fljótlega aftur!
Guđlaug Jóna Sigurjónsdóttir
06. nóvember 2008 klukkan 21:50
Jahérna svo margt búið að gerast síðan ég skrifaði hér seinast að ég veit ekki hvar skal hefjast handa við frásögn....
Það sem ber þó hæst núna er að við erum öll fjölskyldan á leið til ÍSLANDS yfir jólin!!
Það er bara nýkomið til og við erum rosalega spennt!
Við mæðgurnar þrjár ætlum að skella okkur í lest til Köben og þaðan fljúgum við þann 13.des heim. Svenni kemur ekki fyrr en 19. enda verkefnaskil hjá honum blessuðum, í skólanum. Við erum meira að segja komin með leigjendur í íbúðina okkar svo hún mun ekki standa tóm.
Elva Rós eignaðist þann 15.okt lítinn bróður. Hún er því orðið tvöföld stóra systir og ekkert smá stolt af því hlutskipti. Drengurinn hefur verið nefndur Jóhannes Andri og stóra systirin getur varla beðið eftir að hitta hann í persónu
Elísabet Elín hefur nánast alfarið sagt skilið við bleyjuna sína! Hefur hana á aðeins á nóttunni. Núna hefur ekki komið neitt "slys" hjá skvísunni í tvær vikur svo þetta gengur afar vel.
Góðir vinir okkar og nágrannar, Bogga og Ási eignuðust yndislega stúlku, Línu Rut 9.okt. Hún er algjört yndi og stelpunum finnst ekkert slæmt að knúsa hana og kjassa. Elísabet er búin að óska eftir því við pabba sinn að fá lítinn bróður
En það er nú annað kríli á leiðinni hér í næsta húsi svo við látum okkur nægja að dást að annara manna krílum
Um miðjan október fórum við í ferðalag til Kaupmannahafnar til þess að fjárfesta í nýjum vegabréfum fyrir alla fjölskylduna. Lagt var í hann snemma á sunnudagsmorgni og þegar við komum til Köben um miðjan dag, skelltum við okkur í tívolíið. Þar var Halloween stemmning ríkjandi og skreytingarnar alveg frábærar. Systurnar máttu velja á milli þess að fara í tækin eða fá Hrekkjavökubúning. Það síðarnefnda varð fyrir valinu. Við fengum gistingu hjá Erlingi og Hrefnu í nánd við miðbæinn. Þegar komið var til þeirra klæddu stelpurnar sig upp sem grasker og norn og við skelltum okkur öll saman út að borða. Næsta morgun fórum við í myndatöku hjá sendiráðinu og ókum svo heim á leið.
Skólinn gengur mjög vel hjá Svennanum mínum og kláraði hann sitt fyrsta stærðfræðipróf í gær með pompi og pragt. Hann er kominn í mjög góða grúbbu sem vinnur vel saman og er afar sáttur við þetta allt saman.
Ég er bara heimavið og er að möndla saman umsókn í snyrtifræði nám. Von mín er sú að komast inn á næsta ári en það getur víst verið ansi strembið þar sem ég þarf að vera komin með samning á stofu áður en námið hefst. Það lukkast vonandi... Annars er ég komin í kór og nýt þess í botn að vera farin að syngja jólalögin núna. Dætrunum leiðist ekkert þegar ég raula með þeim í bílnum þó Svenna finnist þetta full snemmt ;)
Maður reynir líka að vera duglegur að skella sér í heimsóknir og ég hélt morgunkaffi fyrir fullt af skvísum hér um daginn. Alltaf gaman að hafa fullt hús af fólki 
Við héldum aðeins upp á Halloween síðasta föstudag við mikinn fögnuð dætranna. Þær klæddu sig upp sem grasker og nornadrottning (hvað sem það nú er..) Tvíburarnir og Anja komu í smá partí og voru svo sóttar af Evu sem gekk með þær í hús að snýkja. Vel hlaðnar nammi komu þær heim og heldur betur sáttar við fenginn. Þetta fannst þeim svo sniðugt að við urðum að stoppa þær næsta dag á leiðinni út að snýkja meira....
Lofa að vera duglegri að skrifa hér framvegis.....

Guđlaug Jóna Sigurjónsdóttir
03. október 2008 klukkan 12:42
Úff allt að fara til fjandans á Íslandinu, meira að segja byrjað að snjóa!
Ég hefði átt að kvarta meira í gærmorgun þegar ég ók dætrunum í skóla og dagmömmu og mælirinn sýndi “bara” 7,5 gráður...
Nú prísar maður sig sælann fyrir að hafa náð að selja íbúðina áður en við komum hingað út.
EN ég ætla byrja á því að óska Svanberg, mínum uppáhalds frænda, til hamingju með stórafmælið í dag!!! Óþarfi er að nefna einhverjar tölur
Einnig óska ég Hrefnunni minni til lukku með sitt afmæli þann 27.sept. Við tókum okkur nokkur saman og héldum Surprise partý henni til heiðurs og var ekki betur séð en að henni væri mjög brugðið þegar hún mætti hingað til mín í sakleysi sínu og allir gestirnir stukku fram og öskruðu SURPRISE!
Hér í Álaborginni er flest við það sama. Svenni var reyndar í fríi alla þessa viku og er í þessum töluðu orðum að “klappa” nýju tölvunni sinni. En nokkur fyrirtæki hér í bæ styrktu nýnema í Orkuverkfræði með einu stykki fartölvu og er karlinn hæst ánægður með gripinn.
Ég nýtti vikuna í bakstur, enda verður maður að redda sér á þessum síðustu og verstu tímum með því að fylla kistuna... Nei nei við fjölskylan erum á leið í sumarbústað um helgina með Önnu, Jóni, Arnari, Ranný og börnum hér aðeins norðar á Jótlandinu.
Arnar á stórafmæli á sunnudag svo við verðum að geta haft smá kræsingar handa karlinum.
Elva okkar kom heim með Íslenska lestrarbók úr skólanum á mánudag með þeim fyrirmælum að hún skildi lesa 1-3 bls á dag í henni. Mér fannst þetta ansi merkilegt þar sem daman hafði ekki fyrr lesið eitt orð. En viti menn!
Ég settist niður með dömunni og hún LAS sjálf heilar þrjár blaðsíður í bókinni góðu!!! Stóra daman er því byrjuð að lesa og við erum ekkert smá stolt af henni!!!
Elísabet er alltaf jafn hress. Nema þó á morgnana en það er með eindæmum erfitt að koma henni framúr þessari elsku. Svenni vill meina að við mæðgur séum líkar hvað þetta varðar
Á miðvikudag fór hún í sínu besta pússi á Lægestuen þar sem ljósmyndari mætti á svæðið og tók myndir af öllum krílunum. Flest börnin voru ekki með mikla þolinmæði í að sytja fyrir en mín dama sýndi sína bestu fyrirsætutakta ;) Enda ýmislegt sem hún lærir af stóru systur.
Eins og fyrr sagði er veðrið hér í borg bara fínt, en það er óneitanlega orðið haustlegt. Við fórum og gáfum öndunum hér í hverfinu í vikunni og laufin féllu ansi hratt niður af trjánum. Það verður þó líkega einhver bið á snjókomu, enda ekki svo oft yfir árið sem snjókorn falla hér.
Látum þetta gott heita í bili, mál til komið að pakka í töskur fyrir helgina.
Hafið það öll sem best þar til næst!
Guđlaug Jóna Sigurjónsdóttir
13. september 2008 klukkan 21:29
Guđlaug Jóna Sigurjónsdóttir
05. september 2008 klukkan 22:12
Guđlaug Jóna Sigurjónsdóttir
26. ágúst 2008 klukkan 21:33
Guđlaug Jóna Sigurjónsdóttir
18. júlí 2008 klukkan 20:35
Þá er það Stenbjergvej 295 en ekki Skallerupvej 309 lengur. Já með hjálp nokkurra góðra vina varð það að veruleika í dag að búslóðin okkar var flutt milli húsa hérna í Álaborg. Ég var búinn að vinna um miðjan dag í gær og þar af leiðandi ákvað ég að drífa í að flytja í dag en ekki bíða þangað til á morgun. Enda spáir hellirigningu hérna á morgun. Nú er bara eftir að þrífa og mála aðeins á Skallerupvej áður en ég afhendi lyklana á mánudaginn. Þetta byrjaði í morgun á því að ég fór og fékk kerru leigða hjá hjá Statoil en það var fyrsta leigan sem ég keyrði framhjá þar sem nokkrar nothæfar kerrur voru fyrir utan. Ég fór og fyllti hana ásamt því að setja nokkra kassa í Opelinn. Fljótlega kom Hrefna og byrjaði að hjálpa mér og síðan bættust Ranný, Axel, Ása og Jón í hópinn ásamt krakkaflóði sem öll vildu hjálpa til. Allt gékk eins og í sögu og stend ég í eilífðri þakkarskuld við þau. Í kvöld bauð ég svo öllu liðinu í pizzu og bjór. Ranný og Hrefna höfðu á orði að það væri mjög fínt að sleppa við að elda svona eitt kvöld. Minna getur maður nú ekki gert eftir að hafa fengið svona mikla hjálp. En nú fer að styttast í að ég komi á skerið og á ég bókað flug frá Billund á þriðjudagskvöldi næsta og þá fæ ég að hitta stelpurnar mína aftur eftir mánaðarfjarveru. En ég ætla að láta þetta duga í bili...
Sveinn Rúnar Júlíusson